Sigurlaug Sigfúsdóttir

Sigurlaug Sigfúsdóttir

Eftirfarandi pistli er ætlað að varpa ljósi á bakgrunn og æviferil frænku minnar einnar sem uppi var á seinni hluta 19. aldar. Hún hét Sigurlaug, oft skráð Sigurlög í kirkjubækur eins og títt var um konur með þessu nafni. Hún var Sigfúsdóttir, átti framan af heima í Hörgárdal og Öxnadal en síðar í Kræklingahlíð, Árskógsströnd, Akureyri og Eyjafjarðardölum. Langalangafi minn var faðir hennar, Sigfús Benediktsson frá Flöguseli.

Sigfús (1805-1863) fæddist á Ásgerðarstöðum í Hörgárdal en ólst upp hjá foreldrum sínum í Flöguseli, fremsta kotinu í dalnum. Þau hétu Benedikt Sigfússon (1778-1847) og Rósa Oddsdóttir (1777-1843), bæði fædd á Þelamörk af bláfátækum foreldrum sem Móðuharðindin á 9. áratug 18. aldar léku grátt. Fyrir hjónaband hafði Rósa eignast son sem varð skammlífur í umsjá föður síns en þau Benedikt eignuðust 18 börn. Af þeim komust 10 upp og átta þeirra ólust upp í foreldrahúsum, tvö voru tekin í fóstur. Hreppsnefndin kom einni stúlku fyrir utan heimilis þegar hún var komin á fermingaraldur – sem var reyndar teygjanlegt hugtak þegar Flöguselsbörnin voru annars vegar.

Benedikt og Rósa báru þess merki að vera alin upp í sárri fátækt. Þau lærðu lítt að lesa og þekking þeirra á sögu og eðli æðri máttarvalda þótti lítilfjörleg. Undir lokin sagði þó sr. Páll á Myrká um Benedikt að hann læsi reyndar aumlega en væri ekki afleitur kall, þekking hans væri þó lítil. Lítil lestrarkunnátta og vanþekking á helgiritum skilaði sér til barna þeirra sem voru illa læs og fákunnandi um himnafeðgana. Þau fermdust seint og sum með undanþágum, Sigfús fermdist t.d. ekki fyrr en tvítugur. Öll þóttu þau þó dugleg til verka og heiðarleg. Miklar sögur fóru af harðneskju Flöguselshjónanna í garð barna sinna en þau virðast þó ekki hafa erft hana við foreldra sína, skírðu börn sín eftir þeim og fólu þeim börn sín til fósturs þegar á þurfti að halda. Líklega fólst harðræðið ekki síst í því að eiga stundum lítið til að gefa þeim að éta.

Sigfús var fimmti í röðinni af börnum Benedikts og Rósu. Hann var í foreldrahúsum fram yfir tvítugt, sem sagt fram yfir fermingu, en 23 ára gerðist hann vinnumaður á Ásgerðarstöðum þar í grenndinni, frómur en fávís eins og foreldrar hans. Ári síðar var hann þar enn en þangað var þá komin vinnukona frá Bási, Salvör Gísladóttir, og með henni eignaðist Sigfús son í ágúst 1829, Jónatan, en hann lést mánaðargamall. Ekkert varð meira úr sambandi Sigfúsar og Salvarar en Jón bróðir hans giftist henni seinna og átti með henni þrjú börn en aðeins Jónatan Jónsson komst upp.

Frá Ásgerðarstöðum fór Sigfús niður í Auðbrekku sem vinnumaður og þaðan fór hann út í Hof 1834 til Ólafs Thorarensen læknis og var þar tvö ár. Þá fór hann aftur í Auðbrekku og í júní 1837 eignaðist hann þar dóttur, Sigurlaugu (1837-1890) þá sem hér er fjallað um, með Ingveldi Benjamínsdóttur (1800-1846) sem þar var þá vinnukona. Foreldrar Ingveldar höfðu flust utan úr Grýtubakkahreppi inn í Ystuvík á Svalbarðsströnd þar sem Ingveldur fæddist en um fermingu fluttist hún með þeim inn í Hörgárdal þar sem þau bjuggu á Djúpárbakka og Svíra.

Ógiftum vinnuhjúum var óhægt um vik að hafa börn sín hjá sér í vinnumennskunni og Sigurlaugu var fljótlega komið í fóstur fram í Flögusel til foreldra og systkina Sigfúsar og þar var hún til 1844. Þá þekkti hún stafi enda var þá komin á Flöguselsheimilið vestan úr Skagafirði Jóhanna kona Odds bónda, bróður Sigfúsar, en hún var fluglæs. Ingveldur móðir Sigurlaugar var í vinnumennsku þangað til hún giftist Ólafi Bjarnasyni ekkjumanni á Miðlandi í Öxnadal og tók þá dóttur sína til sín. Samvistir þeirra mæðgnanna urðu þó skammar því að Ingveldur „dó af mislingum“ í ágúst 1846. Þá var skráð um Sigurlaugu að hún kveði vel að en sé aumingi, hvað svo sem í því fólst.

Eftir fæðingu Sigurlaugar var faðir hennar í vinnumennsku á bæjum í Hörgárdal. Hann var í Sörlatungu á árunum 1840 til 1843 og kynntist þar Guðrúnu Friðfinnsdóttur (1808-1846) frá Stóragerði í Myrkárdal, giftist henni og átti með henni tvo syni og eina dóttur sem dó fárra daga gömul og Guðrún lést nokkrum mánuðum síðar. Guðrún hafði lagt með sér son, Jóhann Sigurðsson (1837-1914), í hjónabandið en hann var jafnaldra Sigurlaugu.

Sigfús og Guðrún höfðu flutt frá Lönguhlíð í Barká skömmu áður en Guðrún lést og tæpum mánuði áður en Guðrún dó lést Ingveldur, barnsmóðir Sigfúsar, frá Sigurlaugu dóttur þeirra á Miðlandi. Sigfús stóð nú frammi fyrir því að hafa fjögur börn á framfæri sínu því að hann kærði sig ekkert um – frekar en foreldrar hans – að láta hreppinn sjá um börn sín. Hann fékk fyrst Rósu systur sína til sín sem ráðskonu í hjáleiguna frá Barká, þar sem hann var með syni sína fram á árið 1847, og þá tók hann Sigurlaugu til sín. Jóhanni var hinsvegar komið í fóstur til Lilju móðursystur sinnar sem þá var flutt frá Stóragerði vestur að Reykjum í Hjaltadal. Þar ólst hann upp til fullorðinsára en fór þá í vinnumennsku, síðan af og til í húsmennsku með konu sinni, gerðist þrívegis bóndi, sem stóð alltaf stutt, og endaði ævina þar vestra sem ekkjumaður í skjóli sonar síns. Hann eignaðist nokkur börn með konu sinni og af þeim lifðu fimm til fullorðinsára en flest þeirra ólust upp hjá öðrum að meira eða minna leyti. Þrjú þeirra fluttu til Kanada en fjölmargir afkomendur Jóhanns eru þó á Íslandi. Ævi hans varð lík ævi Sigurlaugar, sem hér er sagt frá, að því leyti að hann var endalaust á hrakhólum og þvælingi milli bæja. Það er efni í aðra grein.

Sigfús fór frá Barká inn í Kræklingahlíð 1847 með börn sín þrjú og bjó þar í Tittlingi ofan Akureyrar nánast til æviloka. Hann giftist aftur og nú Helgu Þorsteinsdóttur, ekkju vestan úr Skagafirði, en því hjónabandi lauk fljótt með dauða Helgu. Hún hafði átt fjórar dætur og ein þeirra giftist til Akureyrar en önnur, Ingibjörg Bjarnadóttir, var með þeim Sigfúsi í Tittlingi fyrstu árin. Börnin fóru fljótlega öll að heiman frá Sigfúsi í fóstur og vinnumennsku, ekkert þó á framfæri sveitarinnar. Mágur Helgu frá fyrra hjónabandi, Páll Hallsson, bjó í Nesi í Saurbæjarhreppi og til hans fóru bæði Ingibjörg og Sigurlaug. Sigurlaug fór í Nes 1851 og var þar næstu ár. Þar fermdist hún 1852 og um hana sagði prestur: „Kunnátta og skilningur þolanlegt, ráð gott.“

Það fór að halla undan fæti hjá Sigfúsi Benediktssyni þegar leið á 6. áratuginn, heilsunni hrakaði og börnin voru öll farin að heiman. Hann bjó fyrst áfram í Tittlingi með bústýru en var síðan í húsmennsku hjá nýjum ábúendum til 1860. Eftir það var hann á framfæri sveitarinnar, tvö síðustu árin til heimilis í Lögmannshlíð, farinn að heilsu. Síðasta árið segir um hann í hreppsbókinni: „Getur enga björg sér veitt sakir brjóstveiki, er orðinn öldungis félaus.“

Og nú loks beinist athyglin óskipt að Sigurlaugu Sigfúsdóttur. Engar heimildir eru til um hana nema í hreppsbókum, manntölum og kirkjubókum, prestþjónustubókum og sóknarmanna­tölum, og þess vegna verða lesendur að geta í eyður þessarar sögu með skrásetjara.

Sóknarmannatal var ekki gert á hverju ári í Saurbæjarsókn á þessum árum þannig að ekki er hægt að rekja feril Sigurlaugar nákvæmlega en næst er það vitað um hana að hún var vinnukona í Saurbæ 1858-1862. Vel má vera að hún hafi verið vinnukona á öðrum bæjum þar fremra á árunum 1855 til 1858 en þarna var alltént hafinn þrjátíu ára þvælingur milli bæja þar sem hún var aldrei meira en 1-2 ár í senn á hverjum stað. Hún fluttist frá Saurbæ árið 1862 í fæðingarsveit sína og var eitt ár í Lönguhlíð í Hörgárdal hjá Jóni Bergssyni „ríka“, áður bónda í Garðshorni á Þelamörk. Hann hafði oft vinnuhjú frá Flöguseli og eignaðist meira að segja barn með Hólmfríði Oddsdóttur Benediktssonar en hún var þó ekki komin til Jóns þegar Sigurlaug var þar. Úr Lönguhlíð fór Sigurlaug út í Skriðu í sömu sveit til Jóns Pálssonar hreppstjóra og frá Skriðu fór hún að Möðrufelli í Eyjafirði sem vinnukona þar sem Guðmundur hálfbróðir hennar var fyrir í vinnumennsku. Þetta var tíundi dvalarstaður Sigurlaugar og nú var hún vinnukona hjá Páli Gíslasyni frá Bási og Maríu, konu hans, Friðfinnsdóttur frá Nesi í Saurbæjarhreppi, þó óskyld fyrrnefndum Páli Bjarnasyni í Nesi. Verður nú gerður nokkur útúrdúr til að gera grein fyrir Möðrufellsfólkinu sem Sigurlaug átti eftir að tengjast.

Flöguselsfólkið var alls ekki ótengt Möðrufellsfólkinu. Páll Gíslason Möðrufellsbóndi var fæddur í Þríhyrningi en fór þaðan með foreldrum sínum, Gísla Gunnarssyni pósts og Guðrúnu Pálsdóttur, fram í Bás í Hörgárdal. Þar fékk Gísli viðurnefnið „bóndanefna“ hjá sr. Gamalíel á Myrká rétt eins og Benedikt í Flöguseli. Guðrún Pálsdóttir, móðir Páls, var seinni kona Gísla en dóttir hans af fyrra hjónabandi var Salvör sú er var fyrsta barnsmóðir Sigfúsar frá Flöguseli og síðar mágkona. Páll Gíslason var ein 8 ár vinnumaður hjá séra Gamalíel á Myrká en lagðist síðan í ævintýri og þó aðallega vinnumennsku og barst fram í Nes í Saurbæjarhreppi. Þar kom hann árið 1843 hnappeldunni á einu heimasætuna sem eftir var á bænum, Maríu Friðfinns­dóttur.

Frá Nesi fluttu Páll og María í Brakanda í Hörgárdal með viðkomu á Moldhaugum í Kræklingahlíð og voru þá komin með fóstursoninn Pál Pálsson, systurson Páls. Í Brakanda hefur þeim búnast svo vel að þau gátu flutt í Möðrufell 1855 þar sem Páll komst fljótt í raðir bestu bænda. Páli og Maríu varð ekki barna auðið en þau ólu upp tvo drengi, áðurnefndan Pál Pálsson og Pál Gunnarsson sem fluttust með þeim frá Brakanda í Möðrufell. Páll Pálsson (1841-1923) var systursonur Páls í Möðrufelli eins og áður segir, sonur Guðrúnar Gísladóttur frá Bási. Guðrún hafði þvælst austur í Eyjólfsstaði á Völlum á Fljótsdalshéraði árið 1840 á eftir Jóni bróður sínum sem þar starfaði sem landpóstur, kallaður Jón Austfirðingapóstur. 

Dvalarstaðir Sigurlaugar Sigfúsdóttur

 

Á Eyjólfsstöðum varð Guðrún ólétt eftir Pál bóndason, síðar nefndan Pál „silfursmið“ sem þá var 17 ára að aldri, 14 árum yngri en Guðrún. Guðrún hrökklaðist aftur norður í Eyjafjörð og kom syni sínum í fóstur til Páls bróður síns. Guðrún var ein þessara kvenna sem gekk illa að festa ráð sitt en eignaðist fjögur lausaleiksbörn með jafnmörgum mönnum, Páll þriðja barnið í röðinni hjá henni. Það er önnur saga.

Páll Gunnarsson var hinsvegar hálfbróðursonur Páls í Möðrufelli, sonur Gunnars Gíslasonar frá Bási, bónda á Espihóli og Merkigili, en hann kemur ekki við þessa sögu.

Ári eftir að Sigurlaug kom í Möðrufell eignaðist hún óskilgetna dóttur, Maríu (1866-1933), með Páli Pálssyni, fyrrnefndum fóstursyni Möðrufells­hjónanna, og tveimur árum síðar bættu þau öðru barni við, Guðjóni (1868-1924), en þá hafði þeim Páli verið stíað sundur og hún orðin vinnukona á Gilsbakka, næsta bæ framan við Möðrufell. Páll var þá enn vinnumaður í Möðrufelli hjá fóstur­foreldrum sínum en hafði þremur árum fyrir fæðingu Maríu eignast barn með Sigríði Ívarsdóttur, vinnukonu á Espihóli, systur Markúsar sem Jón Hjaltason hefur gert heimsfrægan um allt Ísland. Þetta ráðslag Páls hefur ekki fallið í kramið hjá fósturforeldrum hans sem hafa ætlað honum meiri frama en þessar barneignir. Sigríður var ekki hátt skrifuð í samfélaginu og líklega þótti Sigurlaug ekki gott gjaforð heldur. Páli var því fengin enn önnur kona, Ingibjörg Jónsdóttir, sem var 11 árum eldri en hann og hefur átt eitthvað í handraðanum. Með henni eignaðist hann dótturina Hansínu en ekki önnur börn enda Ingibjörg komin talsvert á fimmtugsaldurinn þegar Hansína fæddist. María Pálsdóttir og Sigur­laugar var fóstruð fyrstu árin hjá fósturforeldrum Páls, Páli og Maríu í Möðrufelli, en þegar María eldri féll frá og Páll brá búi fluttist hún til föður síns og ólst eftir það upp hjá honum með Hansínu hálfsystur sinni, fyrst á Ánastöðum í Sölvadal en síðan í Æsu­staða­gerði. Sigurlaug átti hinsvegar að sjá um framfærslu Guðjóns.

Eins og áður segir þurfti eitthvað mikið að koma til svo að vinnufólk gæti haft óskilgetin börn sín hjá sér á þessum tíma, ekki síður en þegar Sigurlaug sjálf fæddist. Hún gat ekki séð því barni sínu farborða sem kom í hennar hlut. Hún átti sveitfesti í Skriðuhreppi og þess vegna varð það hlutskipti Skriðuhrepps að sjá um framfærslu barnsins sem fór ekki í forsjá föður síns. Sigurlaug fór með Guðjón út í Hörgárdal skömmu eftir fæðingu hans og var fyrst með hann í Hátúni en Guðjón var síðan settur niður í Baugasel í Barkárdal þar sem hann var niðursetningur til fimm ára aldurs. Eflaust var hann þar í þokkalegu atlæti enda var Guðrún afasystir hans vinnukona í Baugaseli á meðan hann var þar og hefur verið góð við hann, hefur jafnvel sýnt honum betra viðmót en hún átti að venjast úr sinni eigin æsku í Flöguseli. En svo þegar Guðjón var fimm ára fór hann til föður síns og systur í Ánastaði og ólst upp með þeim til fullorðinsaldurs.

Sigurlaug fluttist sem sagt með Guðjón í heimasveitina en þó ekki lengra en í Hátún eða Hjátún eins og bærinn var nefndur í kirkjubókum á þessum tíma. En nú eru gloppur í kirkjubækur Möðruvalla­klaustursprestakalls enda brann þar kirkja 1865 og amtmannshúsið Friðriksgáfa 1874 og einhver skjöl geta þá hafa glatast, ekki síst ef prestar sem þjónuðu Möðruvöllum hafa haft sama hátt á og presturinn á Bægisá síðar sem sagður var hafa geymt skráningar í kirkjubækur á miðum í frakkavösum. Sigurlaug gæti því hafa verið á fleiri bæjum en Hátúni áður en hún fór út í Friðriksgáfu á Möðruvöllum í Hörgárdal árið 1871 til Péturs Havstein, sem þá hafði verið settur af sem amtmaður, og með honum, fjölskyldu hans og vinnuhjúum flutti hún árið eftir í Ytri-Skjaldarvík í Kræklingahlíð. Meðal barna amtmannshjónanna var Hannes Pétur sem átti eftir að verða fyrsti íslenski ráðherrann. Eins víst að Sigurlaug hafi getað leiðbeint honum eitthvað með stuðlasetningu en færri sögum fer reyndar af brageyra hennar en Hannesar.

Árið eftir fór hún að Blómstur­völlum og enn ári síðar í Skipalón þannig að á þessum árum var hún á heldur betri bæjum. Hún hélt sig enn í Kræklingahlíðinni um tíma og fór frá Skipalóni í Þinghól 1875. Á Þinghóli var þá eingöngu húsfólk og þar var Sigurlaug sögð húskona sem gefur til kynna ákveðið sjálfstæði því að húsfólk átti yfirleitt einhverjar kindur og lifði af afurðum þeirra, auk þess sem það tók þátt í bú- og heimilisstörfum til að vinna fyrir húsaskjólinu. Frá Þinghóli fór Sigurlaug í annað sinn í Blómsturvelli 1876 og síðan í Efri Glerá 1877. Tuttugasti dvalarstaður hennar var hinsvegar út úr korti, ef svo má segja, því að hún fór alla leið út í Ytra-Kálfsskinn á Árskógs­­strönd 1878 og var á Selárbakka þar í grennd árið eftir.

Árið 1880 var hún komin í Blómstur­velli í Kræklinga­hlíð í þriðja sinn en þar var sami bóndinn allan þennan áratug, Ólafur Jónsson sem síðar gerðist veitingamaður á Akureyri. Frá Blómsturvöllum fór hún að Hömrum ofan við Akur­eyri árið eftir og fóstraði þar Einar Árnason síðar alþingismann, fjármálaráðherra og formann Sambands íslenskra samvinnufélaga. Þaðan fór hún að Naustum til Ragnheiðar Stefánsdóttur sem þá var nýlega orðin ekkja eftir Jakob Thorarensen bónda og söðlasmið en þau voru bæði barnabörn Stefáns Þórarinssonar amtmanns á Möðruvöllum sem átti 18 börn með Ragnheiði konu sinni. Frá þessu heldra fólki fór Sigurlaug árið 1883 sem vinnukona til cand.theol. Jóhannesar Halldórssonar og konu hans á Akureyri. Jóhannes var titlaður skólakennari, guðfræðingur og bæjarfulltrúi í manntalinu 1880. Þessi greinargerð fyrir húsbændum Sigurlaugar á þessum árum sýnir að hún þótti gjaldgeng sem hjú heldra fólksins sem gat valið úr vinnufólki. Þegar þarna var komið sögu var Sigurlaug greinilega enginn aumingi eins og presturinn á Bægisá lýsti henni þegar hún hafði misst móður sína á Miðlandi.

Nú virðist Sigurlaug hafa verið farin að huga að því að hressa upp á tengslin við börnin sín tvö sem hún hafði haft lítið af að segja fram að þessu. Árið 1884 fór hún í Espihól og 1885 í Þrúgsá (Strjúgsá) í Saurbæjar­hreppi. Þaðan fór hún til Páls barnsföður síns og konu hans í Æsu­staðagerði og var þar húskona árið 1886. Varla hefur það verið eftirsóknarvert fyrir hana að vera í svo nánu sambýli við konuna, sem var tekin fram yfir hana á sínum tíma, en þetta veit þó enginn lengur. Þegar þarna var komið sögu var María, dóttir hennar, farin að heiman, komin með mann og farin að búa en Guðjón var enn hjá föður sínum. Árið eftir var Sigurlaug vinnukona í Leyningi, ranglega skráð Sigurbjörg í sóknarmannatalið. Hún hefur þá getað skroppið í heimsókn til Maríu, dóttur sinnar, sem þá var í húsmennsku með Friðriki bónda sínum á Halldórsstöðum, nokkrum bæjarleiðum framar í dalnum, og Guðjón sonur hennar var heldur ekki langt undan í Æsustaðagerði. Árið 1888 var Sigur­laug vinnukona á Jórunnar­stöðum, skammt utar í dalnum, og var því enn í nágrenni við börn sín bæði því að María var þá komin í Ytri-Villingadal og Guðjón var í heimahúsum. Sigurlaug sagði eftir þetta skilið við Eyjafjarðardali en ekki við sína nánustu því að hún fór frá Jórunnarstöðum í Grjótgarð á Þelamörk til Guðmundar bróður síns 1889 en það var þrítugasta og fyrsta heimili hennar, sem vitað er um með vissu, og það síðasta. Hálfu öðru ári síðar lést hún á Grjótgarði, 53 ára að aldri. Um bana­mein hennar er ekki getið.

Aumingja­nafnbótin sem Sigurlaug fékk á Miðlandi hlýtur að vekja upp ýmsar spurningar um Sigurlaugu því að oft var það viðurnefni notað til að gefa til kynna andlega eða líkamlega fötlun. Ekkert bendir þó til að hún hafi verið andlega eða líkam­lega skert. Hún var læs 11 ára gömul þrátt fyrir uppeldið í Flöguseli þar sem bóklestur hafði lítt verið stundaður þangað til Jóhanna, kona Odds Benediktssonar, kom inn á heimilið. Lestrar­geta hennar var þó e.t.v. ekki mikil því að Glæsibæjar­klerkur, sem þjónaði Lögmannshlíðarsókn, flokkaði fólk aðeins í tvo flokka, læsa og ólæsa. En þess er ekki heldur getið nokkru sinni að hún hafi verið líkamlega fötluð og það að hún skyldi tvívegis vera húskona á bæjum bendir ekki til annars en að hún hafi verið sæmilega sjálfbjarga, andlega og líkamlega. Hún var í vistum á mörgum efnaheimilum, sem gátu valið úr vinnufólki, og það styður tilgátuna um að Sigurlaug hafi haft fullt líkamlegt, andlegt og siðferðilegt atgervi.

Á bernskuárunum var Sigurlaug vissulega nokkur ár í senn í Flöguseli, Tittlingi, Nesi og Saurbæ. Seinni hluta ævinnar þvældist hún hins vegar bæ frá bæ, eirði hvergi lengi og kom ótrúlega víða við og var á a.m.k. 31 stað á þeim 53 árum sem hún lifði. Lengst af var hún annarra hjú en þó einstöku sinnum í húsmennsku þegar hún kom fram á miðjan aldur. Lítið hafði hún af ættingjum sínum að segja eftir að hún komst yfir fermingaraldurinn en var þó til heimilis með Guðjóni syni sínum í Æsustaðagerði eitt ár þegar hann var kominn undir tvítugt og það segir sína sögu að hún skyldi leita athvarfs hjá Guðmundi bróður sínum þegar heilsuna þraut. Þau hálfsystkinin, Guðmundur og Sigurlaug, höfðu verið saman um fjögurra ára skeið í Tittlingi, síðan eitt ár á Möðrufelli og lengur í nábýli þegar hún var á Gilsbakka en hann á Möðrufelli. Og hjá Guðmundi og Steinunni á Grjótgarði fékk hún athvarf í hálft annað ár til að ljúka ævinni.

María Pálsdóttir

Að lokum er rétt að gera börnum Sigurlaugar Sigfúsdóttur nokkur skil. Eins og áður hefur komið fram ólst María fyrst upp hjá nöfnu sinni og fóstru föður hennar í Möðrufelli en eftir fráfall hennar fór hún til föður síns sem þá bjó á Ánastöðum í Sölvadal, síðar í Æsustaðagerði. Árið 1884 voru María Pálsdóttir og Friðrik Jósefsson (1862-1905) vinnuhjú á Tjörnum. Þann 8. október 1885 voru þau gefin saman í hjónaband, hún þá vinnukona á Tjörnum en hann vinnu­maður á Halldórsstöðum. Árið eftir voru þau gift vinnuhjú á Vatnsenda ásamt elsta syninum, Pálma Júlíusi f. 31. júlí 1886. Sögusagnir fóru af stað um að réttur faðir Pálma Júlíusar hafi verið Pálmi Pálsson yfirkennari í Reykjavík, sonur Páls Steinssonar bónda á Tjörnum, enda hafi Pálmi Júlíus verið ólíkur systkinum sínum í útliti og fasi. 

Samkvæmt sögunni á Pálmi Pálsson eða jafnvel móðir hans að hafa fengið Friðrik Jósefsson til að gangast við barninu. Rúmri öld síðar virðist þessi kenning ótrúverðug í ljósi skráðra dagsetninga í kirkjubókum. Enginn vafi leikur á að vingott hafi verið með Pálma bóndasyni á Tjörnum og Maríu vinnukonu á meðan þau voru þar samtíða því að annars hefði sagan ekki farið af stað. Tæplega hefur það þó verið eftir að María og Friðrik giftust, þótt auðvitað sé allt til í því. Hafi barnið hins vegar verið komið undir áður en þau giftust og bóndasonur (eða móðir hans) gripið til ráðstafana til að fá Friðrik til að ganga í málið, þá hefur giftinguna borið afar brátt að. Auk þess hefur þá verið um einhverja lengstu meðgöngu Íslandssögunnar að ræða eða ekki skemmri en 10 til 11 mánuði en líklegasti getnaðartími Pálma Júlíusar er svo sem þrem vikum eftir giftinguna m.v. fæðingardag hans. 

Eða er hér um að ræða sögu um ástir í meinum og óðalsbónda/húsfreyju sem stíaði elskendum í sundur til að erfinginn tæki ekki niður fyrir sig og giftist fátækri vinnukonu? Og til að bíta hausinn af skömminni barnaði svo bónda­sonurinn nýgifta konu vinnumannsins sem lét barnið heita í höfuðið á friðlinum. Sagan er ekki sem verst en eins og áður segir er erfitt að trúa henni núna.

Sonarsonur Maríu, Ingólfur Pálmason, skrifaði afar fallegan og hlýlegan skólastíl um ömmu sína þegar hann var í Menntaskólanum á Akureyri. Þar segir hann eftir henni frá hrifningu hennar af Pálma á Tjörnum þegar hann sem skólapiltur dvaldi í foreldrahúsum sumarlangt en hún var þar vinnu­kona. Þar segir í lokin: „Það er engin þörf fleiri orða. Hér gerðist saga heitra ásta en engra fíflskapar­mála. En örlögin vörnuðu þeim að njótast. Foreldrar hans voru mótfallin þessum ráðahag, einkum móðir hans. Fékk hún því ráðið að María giftist vinnumanni á Tjörnum, Friðriki að nafni, duglegum manni en lítt efnuðum.“ (Úr fórum Guðrúnar Ingólfsdóttur Pálmasonar).

Hvernig svo sem til hjónabands Maríu og Friðriks var stofnað virðist það hafa verið farsælt. Þau eignuðust 6 börn auk Pálma Júlíusar, Margréti Sigríði f. 1887, Jósef f. 1891, Guðrúnu f. 1896, Guðlaugu Þóru f. 1899, Níels f. 1902 og Pál Svein f. 1904. Þau bjuggu lengst af í Hólsgerði eða þangað til Friðrik lést árið 1905 en eftir það bjó María með og hjá börnum sínum, t.d. var hún ásamt Jósef í Hleiðargarði 1910, síðan á Torfum og loks hjá Pálma í Gullbrekku frá 1916 til dauðadags 1933. Út af þessu fólki er talsverður ættbogi kominn í Eyjafirði og á Akureyri (Eyfirskar ættir I bls. 10-14).

Pálmi Júlíus Friðriksson eignaðist 5 börn. Á meðal afkomenda hans er Dr. Guðrún Ingólfsdóttir bókmennta­fræðingur.

Margrét Sigríður Friðriksdóttir átti þrjár dætur með þremur mönnum og er mikill ættbogi út af henni kominn. Meðal afkomenda hennar var Árdís Guðlaugs­dóttir sem átti 12 börn með Henry Stefáni Henriksen, norskættuðum manni. Þau bjuggu á Akureyri. Þekktastur barna þeirra er líklega Aðalsteinn Bergdal leikari.

Guðrún Hansína Friðriksdóttir átti tvö börn, Friðrik Stefánsson f. 1924, sem fluttist til Siglufjarðar, og Þórunni Hallgríms­dóttur sem bjó á Akureyri. Þórunn var móðir Sigurðar J. Sigurðs­sonar sem var lengst allra bæjarfulltrúi á Akureyri.

Guðlaug Þóra Friðriksdóttir giftist Sigurvin Jóhannessyni f. 1891 í Möðru­felli en þau bjuggu á Völlum í Djúpadal í Eyjafirði 1939-1969 og eignuðust 10 börn. Dætur þeirra hafa búið þar ásamt þeim. Jakobína f. 1932 bjó þar 1952-1953 og Margrét Lilja f. 1930 bjó þar 1958-1966 en eftir að Guðlaug lét af búskap á Völlum hefur Kristín Friðrika búið þar, gift Leif Lykke Mikkelsen.

Þessi dæmi um afkomendur Maríu Pálsdóttur eru handahófskennd og val þeirra ræðst mest af því sem söguritari þekkir og heldur að sem flestir lesendur þekki en ekki af mati á verðleikum.

Guðjón Pálsson og Sigurlaugar ólst upp hjá föður sínum á Ánastöðum og í Æsustaðagerðum ef undan eru skilin allra fyrstu fimm árin sem hann var niðursetningur í Baugaseli. Meðal eldri Eyfirðinga gengu af honum margar sögur sem hafa eflaust færst í stílinn með árunum og þessar sögur kann skrásetjari alls ekki nógu vel. En Guðjón virðist hafa verið einstakur hrakfallabálkur. Hann hjó af sér þumalfingur. Og Hannes nokkur á að hafa fengið Carnegie-verðlaun fyrir björgunarafrek þegar hann bjargaði Guðjóni frá drukknun. Guðjón var víða í vinnumennsku en aldrei við kvenmann kenndur. Hann dó á Akureyri 1924 en hafði þá verið vinnumaður í Gröf. Banameinið var krabbi.

Þessi grein birtist í Heimaslóð 2022.